<$BlogRSDUrl$>
Íslandskonan
just keep swimming Rafpóstur

Saturday, January 28, 2006

pottþétt... 

herbergið mitt er ekki eins hljóðeingrað og ég bjóst við að það væri.... allir diskar heima í Hungary og ekkert almennilegt útvarp inn hjá mér... hvað gera danir þá... jább þeir gramsa og grafa í gamla plötusafninu og finna heyrðu og pottþétt diskana sína... jább ég er nú bara ekki frá því að pottþétt 1 sé bara fjandi þéttur diskur með nokkrum ógleymanlegum smellum frá því maður var hva.... tja.... 12 ára :o)

var í world class áðan... þá bjóða þeir upp á síríus (kann ennþá söguna erna) nudd... þá felst það þannig að siríussúkkulaði er bráðið og bætt við olíu sem þú ert síðan nuddaður uppúr og á þetta að vera voðalega heilsusamlegt... fyrir mér er þetta nú bara aðferð á góðum forleik... en jæja... kannski eru worldclassmenn byrjaðir að selja ungverska yngismeyjar undir fölskuflaggi... maður veit ekki... en ég persónulega myndi ekki borga extra fyrir að láta löðra mig uppúr súkkulaði takk fyrir

kv. gunnhildur halldóra á leiðinni á djammið....

Thursday, January 26, 2006

world class here I come.... 

ég held að klósettburstar séu með því ógeðslegra sem fyrirfinnst... brún/rauðir burstar af elli og kúkavatn sem flýtur um í hulsunni sem maður lætur þá í... jakk... mér dettur sko ekki í hug að koma við klósettburstana í TB... nem köszönöm....

kv. gunna dóra

Tuesday, January 24, 2006

alltaf á leiðinni.... 

jább... reykjavík here I come.... 22.40 city of keflavík....

sjáumst
kv. gunna

Saturday, January 21, 2006

snjor snjor skin a mig.... 

jabb tad sannarlegar snjoar her i landi ungverja... vonandi svo mikid ad tad drepi helvitis krakurnar sem vekja mig stundvislega klukkan 7.20 alla morgna... jabb allskostar areidanlegar tessar krakur....

senn fljotlega fer tessu proftimabili ad ljuka og eg get farid heim ad sofa.... jabb... baugar nidra piku og endalaust leidinlegur humor... eg held ad læknanemar seu med leidinlegasta og surasta humor i proftimabili... en svo framarlega sem okkur finnst etta fyndid ta er tad svo sem agætt.....eg meina hverjum odrum finnst oheyrilega fyndid ad vera med einn storan skapabarm (labia majora) og geta bara breytt yfir heila klabbid..... eg held engum...

en tad er vist ekki bara humorinn sem fer heldur lika svona normal gedheilsa... eg eyddi t.d. 15 min adan i ad teyta rjoma... eda tad sem eg helt ad væri rjomi og bolsotadist mikid hversu langan tima tad tæki.... helvitis ungverski rjomi sem kemst ekki i halfkvisti vid tann islenska... tangad til ad eg attadi mig a tvi ad eg var ad teyta mjolk.... normalt....

norsk vinkona min var ad tala um hversu oft ætli hin venjulega kona lendi i natturulegri fostureydingu... og hun var alveg viss um ad tad hefdi einu sinni komid fyrir hana... tvi einu sinni kom eitthvad sem liktist geimveru tarna ut nedan fra.... og hun var viss um ad tad væri strakur... edlilegt...

jæja verd vist ad logga mig utur sidmenningunni og halda afram ad TBast....

ord dagsins: Kristrun "hvada pussusull er nu etta... " eg held ad etta se mesta objodins ord ever...

kv. gunna dora

Tuesday, January 17, 2006

hausverkur... hausverkur... 

er með magnaðan æðakipp í hausnum á mér.... það er víst eitthvað til að sofa aðeins of mikið... kláraði próf í gær... sofnaði 14 og var að vakna núna 10 daginn eftir.... jább ég held að ég hafi verið svoldið þreytt.....nú er bara að gíra sig upp í það næsta og síðasta....

annars er peter molnár með heimasíðu með video...og tók hann þetta flotta jólavideo heima hjá amín og hörn...

kv. gunna dóra

Sunday, January 15, 2006

history all over again.... 

bank bank bank bank... þukla þukla þukla.... internal próf á morgun... og boy hvað maður kann lítið.... fólk er víst að fljóta á þessu prófi án mikillar þekkingar... vondandi gerist það hjá okkur beggs á morgun...

fór til búdapest á föstudaginn... ætlaði í óperuna... á das pliegermause eða svo... en hún var búin alltof seint og þá var að sjálfsögðu síðasta lest löngu farin því ungverjar fara snemma SNEMMA að hátta.... þannig við bara chilluðum.... appearantly er berglind orðin rasisti í hæsta gæðaflokki því meðan við vorum að japla á ís gengur þessi þeldökki maður framhjá og um leið segir berglind.... OJJJJJOJJJJ það er nú bara ógeðslegt (man ekki alveg hvað við vorum að tala um) en greyið þeldökki maðurinn snýr sér í 180gráður og hvessir augunum á berglindi áður en hann hraðar sér í burtu (hann hefur pottþétt séð vöðvana á mér við hliðina á og ekki þorað í berglindi)

quote dagsins: Hafsteinn Daníel Þorsteinsson "etta gekk nú bara eins og í sögu..... STEPHAN KING sögu....."

kv. gunna dóra

Thursday, January 12, 2006

einhverfa stelpan..... 

jább....átti frekar grose umræður um daginn.... jább eins og flestum er kunnugt er ég að horfa á krufningar reglulega.... síðan erum ég og berglind með einn komplexinn og þá segir berglind... "gunna ég get ekki með nokkru móti skilið náriðla" hahaha í fyrsta lagi þá er þetta einstaklega vel þýtt íslenskt orð.... og í öðru lagi JAKKÍ.... að það sé til fólk (no let me rephrase)karlmenn sem leggjast svo lágt (eða ofan á) að klifra upp á lík og losa aðeins um.... varnarlaus lík...

Kári vill taka það fram að hann er ekki gallharður stuðningsmaður náriðla þrátt fyrir að vera besti nauðgarinn og ætlar ekki að flytja sig upp um stuðul.....

quote dagsins " Begga : Gunna þú ert stundum svo einhverf.... en á svo góðan hátt"

kv. gunna dóra

Wednesday, January 11, 2006

hoppa í haldara...... 

ég held að ég yrði ágætis mella.....jább... ég er allavegana góð að selja mig.... og föl fyrir afskaplega lítinn pening.... um daginn leiddist mér eitthvað í tb... enda búin að vera þar í tjaaaaa 15 tíma... þannig ég fór inn á klósett... klæddi mig úr brjóstahaldaranum.... fór inn í seminar 5.... og setti brjóstahaldarann minn yfir hausinn á kristrúnu.... sem by the way... fannst þetta ótrúlega hlýtt og gott......

jább það fá þetta sko ekki allir..... síðan manaði hún mig í ganga með brjóstahaldarann utan yfir peysuna mína og taka einn hring í tb.... sem ég að sjálfsögðu gerði fyrir eitt stykki lasagna.... nú bíð ég bara eftir fleirum tilboðum....

jæja... ætla að fara læra..... svo gaman að eiga svona fjölbreyttan dag :o)

kv. gunna dóra

Sunday, January 08, 2006

kinaland takk fyrir.... 

jabb.... konan byrjud ad nidast a kinverjum..... noldradi endalaust i einum ad leyfa mer ad nota internetid... og sjalfsogdu tordi greyid ekki annad i ljosi tess ad eg er mikilv;gur 3 ars nemi.... ja...

annars er eg komin med oged af lestri.... suddalega leidinlegt svona til lengdar....

um daginn forum joney,vaka og eg ad borda.... og erum vid ad tala um nu hversu ljotir ungverskir gaurar eru.... og ta segir pimpid.... nu teir eru allavegana ekkert BLOM... hver i fjandnum kallar s;ta straka... blom....

leyfdi utlendingunum ad tefa af goms;tum islenskum fisk... teim fannst lyktin ekki bjodandi folki og skyldu engan veginn hvernig eg gat stungid tessum vidbjodi upp i mig....

sida dagsins er tvim;lalaust.... www.17173.com..... mikill frodleikur tar a b;

kv. gunna dora

Tuesday, January 03, 2006

komin á ról.... 

sá tími kominn þar sem hringt er í pizzeríuna daglega..... eitthvað virðist þó businessgenið fara á mis við ungverja... því best bara að loka besta pizzustaðnum svona yfir hápróftímabilið og kaffistofunni líka.... já svona til að endanlega drepa okkur... pizza og kaffi - the lifeforce in examperiod....

en allavegana.... síðan kaupi ég mér spagettí... fæ ENGIN hnífapör með... ég hleyp á eftir gæjanum.... og hann bara sorry engin hnífapör... en ég get látið næsta sendil koma með þau.... síðan eftir 1.15 mín þá kemur gaurinn með hnífapör.... shit.... þvílík þjónusta...

move dagsins: shittt..... í gær var viðurstyggileg lykt inni hjá andra og mér... ég fer að sniffa útí loftið... og enda á einhverjum poka á borðinu inn í eldhúsi.... kalla á andra og spyr hvað í fjandanum hann sé með í þessum poka.... þá kom í ljós að hvorki ég né hann áttum þennan poka... ég lít í pokann og sé tvær plastskálar með loki... ég þori ekki að opna og læt karlmanninn á heimilinu opna.... þá kemur í ljós fiskipaprikusúpa sem er orðin svo mygluð að það byrjar að krauma í henni þegar andri opnar... greinilega eitthvað lifandi sem vill fá loft...

greyið landlordinn hefur ætlar að vera svo góður að koma með mat.... greinilega erum ég og andri svona umhirðulaus að okkur var alveg sama um þennan poka í meira en 10 daga á borðinu....

kv. Gunna Dóra

Monday, January 02, 2006

baaaaaaaaahhh 

ekkert blogg í viku... djísus... þvílík og önnur eins leti...

annars er bara same old same old... læra og læra meira.... áramótin voru s.s. ágæt útaf fyrir sig.... nema eitt atvik þar sem ég var kýld.... jább elmhildur spyr mig mjög kurteislega hvort hún megi kýla mig og játti ég því bara.... trúði ekki fyrir mitt litla líf að hún myndi kýla mig... en jæja ég fæ bara einn í smettið.... ELMA HVAÐ ERTU AÐ GERA.... nú þú sagðir að ég mætti þetta... öll blá og marin á hægri kinninni.... en góður krókur... góður krókur... mæli ekki með að hitta hana í dimmu húsasundi... en ég verð að gefa henni það að hún spurði mjög kurteislega :o) eitt knús fyrir elmu..

það er nokkuð ljóst að ég á HEIMA í tb.... til marks um það að nú á ég mat í ísskápnum í tb.... jább eitt stykki hangikjöt geymt vel á kaffistofunni...er jafnvel að spá að kaupa mér tannbursta og geyma hann bara inn á girnilega klósettinu....

quote dagsins: Kári "nú myndin með Jessicu Alba... hún er svona jafnmerkileg og Linea Alba" eru sumir búnir að læra yfir sig...... Anaaaaaaaaaaaaaatómía....

This page is powered by Blogger. Isn't yours?