<$BlogRSDUrl$>
Íslandskonan
just keep swimming Rafpóstur

Thursday, November 30, 2006

jæjaaaaaaaaaaaa 

próftímabilið hafið með tilheyrandi vitleysisgangi...prófatímabilið er búið að standa yfir í 4 daga og eftirfarandi hefur nú þegar gerst!

*eftirhermu superman hlaup með sjal
*maðurinn með stráháttinn
*stúlkan sem lærði með þvottaklemmu í nefinu
*mikið tal um mögulegar aðferðir við að borða próftopic
*stúlkan sem getur ekki gert upp við sig hvað hún er: svertingi,írani,múslimi!
* og mikið mikið mikið meira sem verður því miður að vera ritskoðað! ;o)

kláraði pharm jólaprófið í dag... gekk vel... næsta próf er á föstudaginn og ef vel gengur er ég búin með 2 stóru prófin á þessari önn!

jæja... rúmið er ansi appealing þegar maður er þreyttur eftir erfiðan prófdag! ;o)

kv. Gunna Dóra

Monday, November 20, 2006

að taka með sér nesti! 

ungverjar eru ekki hægt... emese og daníel voru að fara til london í nótt.. í gær var mér gert að smyrja með þeim samlokur... ekki skyldi ég afhverju ég var að smyrja heilt tonn af samlokum... þá voru þau að taka með sér mat í ÖLL mál í London! ég útskýrði það fyrir þeim að það væri nú alveg til matur í london! shitttt þetta hefur slagað vel upp í 20 kg... !!!! þeim fannst þetta ekki fyndið...!!

pæling dagsins: myndi maður vísvítandi gefa barninu sínu svarta dúkku til að "kenna" barninu jafnrétti.... hvenær ætli það komi homma og lesbíu dúkkur út?

kv. Gunna Dóra

Monday, November 13, 2006

moses...... 

jesús... klukkan er 8 á mánudegi... hér fyrir utan húsið mitt stendur sígauni og gólar hástöfum eitthvað sígaunalag...! it ain't pretty...

spurning hvort maður eigi að hætta sér út...!

kv. Gunna Dóra

Saturday, November 11, 2006

ungverjaland in all its glory 

varð fyrir því óláni í gær að misstíga mig á handboltaæfingu... ekki í fyrsta skipti og ekki í annað skipti...búin að vera hoppandi hér á öðrum fæti í 2 daga... því appearantly er ekki hægt að fá hækjur nema á virkum dögum frá 8-16 mán-fim og 8-14 á föstudögum...! þetta er nottla ekki hægt...minnir mann ískyggilega á hjartadeildarlokunina á íslandi hérna um árið....

note to self.... ekki meiðast um helgar...!ég fer að fá álagsmeiðsli í hinn fótinn!

lag færslunnar...tvímælalaust.... JUMP AROUND!

kv. Gunna Dóra

Wednesday, November 01, 2006

6ft under 

fór á ALVÖRU handboltaæfingu í gær... æfingin var á mjög ókristilegum tíma eða klukkan 8.30 um morguninn... eftir að hafa verið á barmi þess að æla var æfingunni loks lokið... þá var mér tjáð að næsta æfingin væri klukkan 16 samdægurs... jesús kristur... nokkuð ljóst að maður fer langt á þrjóskunni því ég hafði hana af... rúmið leit nokkuð vel út snemma kvölds! ;o)

var að hlusta á lagið animal song með savage garden... þá varð mér hugsað til vinkonu minnar sem misskildi alltaf lagið og söng alltaf CANNIBAL, so careless and free... ef einhver er nokkuð safe í þessum heimi án þess að vera étið þá er það líklegast CANNIBALIÐ sjálft...

svo bara foreldrarnir að koma á morgun... jibbí kóla...

kv. Gunna Dóra

This page is powered by Blogger. Isn't yours?