<$BlogRSDUrl$>
Íslandskonan
just keep swimming Rafpóstur

Monday, July 28, 2008

úfffff 

og ég sem að það væri ekkert hægt að vera meiri suddi en Simonyigengið.... fór edrú í smápartý í gær með nokkrum stelpum... þvílíkaaaaa ruglið... vafasamlegu atvikin sem fóru þar fram...! hahahahahahah

ég er allavegana búin að komast að því að ég er hrein mey í drykkju miðað við þessar yngismeyjar...

kv. Gunna Dóra

Saturday, July 26, 2008

spekingurinn Gunna Dóra 

einhvern tímann á ég víst að hafa sagt þetta við björgu...

"björg... veistu afhverju við eigum að njóta lífsins?"spáðu í það ef horið okkar lyktaði eins og skítur.... þá værum við screwed....

Friday, July 25, 2008

suðurnesjalið....ussss 

ég þurfti að hafa samskipti með heilsugæsluna í reykjanesbæ.... allt í lagi... fer í símaskrána og finn bara sjúkrahúsið... eftir mikla mæðu hugsa ég að þau hljóta nú að vita númerið á heilsugæslunni... ég hringi og loksins svarar stelpa í símann...

ég:"góðan daginn... ég heiti guðrún dóra og er að vinna á geðdeildinni mig vantar símanúmerið á heilsugæslunni..." hún: "já það... 4220500" og ég bið hana að endurtaka og hún svarar aftur...4220500

mér fannst þetta nú mjög spes í ljósi þess að ég VAR AÐ HRINGJA Í ÞETTA NÚMER´
ég"bíddu... er ég ekki að hringja í þetta númer"
hún "jú þetta er líka heilsugæslan"

shittttt hvað hélt hún.. ég myndi skella á og hringja aftur og þá myndi hún svara... "heilsugæslan"

Trega trega... kannski ekki að ástæðulausu að það sé verið að tala um lokun þarna á suðurnesjum!

kv. Gunna Dóra

Friday, July 18, 2008

yeah.... 

jæja... hún kom inn... öndin kom inn í forstofu og starði á okkur í eldhúsinu... stingandi augnaráðið... hvernig datt okkur í hug vera ekki búin að setja brauðið í dallinn hennar.... jámm... hún er greinilega búin að dömpa steggnum... núna er hún alltaf ein.... á greinilega mikla samleið með okkur kvenrembunum á nesbalanum... ég og mamma erum búnar að skíra hana Bergþóra... mamma sagði um daginn að við þyrftum engan hund... "VIÐ ERUM MEÐ VARÐÖND"

Lenti á smá skralli á miðvikudaginn... úffffff mér var ýtt í leigubíl klukkan 2.30 og vinna daginn eftir... ég var ekki mjög fersk...! shittt

note to self: ekki fara á fara á fyllerí og troða vodkafylltum bómul á milli tána..! þessir kr-ingar eru nottla ekki hægt..! ómenni....

kv. Gunna Dóra

Saturday, July 12, 2008

spes..... 

var að sprella smá í gær... var að bíða eftir klósettinu og það er einn drengur á undan mér.. þannig ég bara hoppa inn með honum og er eitthvað að horfa í spegilinn þegar hann vippar buxunum niður og sest... og ég lít og spyr hann hvað hann sé að gera... neinei... þá er hann að dömpa bara... og fannst það bara mjög eðlilegt og segir við mig að hann kúki alltaf á skemmtistöðum.. hann verði að gera það þar sem hann er með svo mikla gyllinæð... ég sagði honum bara að ýta æðinni upp...

honum fannst þetta mjög eðlilegt allt saman... svooooo heimilislegt...!

Friday, July 11, 2008


á hversu miklum sterum er þessi...

Tuesday, July 08, 2008

vaktaskil.. 

jammm maður á það til að vera frekar þreyttur þegar maður er að skila af sér vaktinni... ég tel mig nú ágætlega máli farna og fín í íslensku... en þegar ég er þreytt þá GET ég ómögulega talað rétt.. ef ég staulast fram úr því að finna rétta orðið þá get ég varla fallbeygt það...

núna var ég að segja björgu frá raunum mínum ;o) og ætlaði að segja að ég væri bara stundum eins og fáviti á þessum morgunfundum.. þá endaði ég að með að segja... stundum er ég bara eins og fótbolti....!!!!! shitttttt

já ég er nú fótboltafrík.... en ekki alveeeeeeeg svona mikið...

kv. gunna dóra

Wednesday, July 02, 2008

mighty ducks 



hahahahah núna um daginn þá heyrir systir mín *bank**bank* þá var öndin komin upp að svalahurðinum og byrjuð að gogga í hurðina... þessar endur eru nú ekkert smá óprúttnar...bráðum setjast þær við borð með okkur...

ekki nóg með það þá eru starrar komnir líka til að borða brauðið... og koma með ungana sína og það er ekkert smá fallegt að sjá þegar ungarnir GARGA á mat og eldri fuglarnir stinga mat í gogginn á þeim til að þagga niðrí þeim!

ohh ég er nú farin að sakna simonyi svoldið... ætla að chilla með þessum í kvöld... 10´s

This page is powered by Blogger. Isn't yours?